Flugskóli Akureyrar

Hvað er einkaflugmannspróf? Þegar þú hefur lokið einkaflugmannsnámi færðu réttindi til

Spurt og Svarað

Hvað er einkaflugmannspróf?
Þegar þú hefur lokið einkaflugmannsnámi færðu réttindi til þess að fljúga með farþega og flugvél með allt að 5700 kg hámarksmassa. Einkaflugpróf er fyrsta skrefið til atvinnuflugnáms, einnig er einkaflug frábært áhugamál og er fjöldi manns á Íslandi sem hefur flug einungis sem áhugamál

Hvað er solo (einflug)?
Þegar flugkennari telur nema vera orðinn nógu færan til að fljúga einan er hann sendur í solo, þ.e. þá fer nemandinn einn, en undir eftirliti kennara. Þegar því er lokið sækir nemandinn um solo-skírteini hjá Flugmálastjórn Íslands. Eftir það flýgur nemandi ýmist einn eða með kennara, en alltaf undir eftirliti kennara. Kennarinn ákveður hvaða æfingar flugneminn á að framkvæma í hvert skipti og kvittar fyrir í skírteini hans.

Hvað þarf marga flugtíma fyrir solopróf?
Lágmarks tímafjöldi til að fara í fyrsta soloflugið eru 12 flugstundir með kennara en yfirleitt fer það upp 15 flugtíma. Nemandi fer aldrei solo fyrr en kennari er fullviss um að hann sé hæfur til þess að gera allt sem þarf á eigin spýtur

Hvað þarf marga flugtíma fyrir einkaflugpróf?
Lágmarkstímafjöldi eru 45 flugtímar, reikna má með 50 flugtímum

Hvað tekur þetta langan tíma?
Bóklegt námskeið tekur um 12 vikur. Hægt er að klára verklegt nám á 2-3 mánuðum en fer allt eftir nema, Nemandinn ræður ferðinni sjálfur. Algengur tími er 6-12 mánuðir frá upphafi náms og þar til nemi útskrifast sem einkaflugmaður.

Hvað kostar einkaflugnámið?
Hjá Flugskóla Akureyrar kostar allt einkaflugnámið um 1.018.580 kr og er það afsláttarverð þar sem miðað er við að nemandi geri námssamning við Flugskólan fyrir öllu náminu í gegnum námsmannalínu Landsbankans. Innifalið í verðinu eru 45 flugtímar, laun flugkennara og bóklegt námsskeið/námsskeiðsgögn. Rukkað er af námslínu mánaðarlega eftir framvindu námsins, ekkert greitt fyrirfram. Ekki er innifalið í verðinu próftökugjöld hjá Flugmálastjórn Íslands né bókleg kennsla fyrir og eftir flugtíma.

Hvaða bókleg próf þarf að taka ef skírteinið hefur runnið út í lengri tíma?
Verklagsregla um kröfur á bóklegum prófum ef einkaflugmannsskírteini hefur runnið út í lengri tíma. (word skjal)

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf