Flugskóli Akureyrar

Saga Flugskóla Akureyrar Flugskóli Akureyrar var stofnaður á Melgerðismelum árið 1945 og voru stofnendur hans

Um Skólann

Saga Flugskóla Akureyrar


Flugskóli Akureyrar var stofnaður á Melgerðismelum árið 1945 og voru stofnendur hans Gísli Ólafsson og Árni Bjarnason. Þeir félagar ráku skólann um nokkra ára skeið og var flogið frá Melgerðismelum, enda var Melgerðismelaflugvöllur þá flugvöllur Akureyrar. Flugflotinn var tvær Piper Cub kennsluflugvélar og Fleet Finch tvíþekja. Eftir að Akureyrarflugvöllur var byggður fluttist flugstarfsemi að mestu til Akureyrar. Flugkennsla varð síðar í höndum ýmissa aðila . Árið 1978 var skólinn endurvakinn að frumkvæði Flugfélags Norðurlands h/f. Árið 2000 keypti Sella ehf. rekstur Flugskóla Akureyrar af Flugfélagi Íslands.1. júlí 2008 var nafni Sellu ehf. breytt í Flugfélag Akureyrar ehf. 

Til flugkennslunnar í dag hefur skólinn tvær sér hannaðar flugvélar til umráða af gerðinni Piper Tomahawk Pa 38-112. Þær hafa reynst frábærlega til verklegrar flugkennslu.

 

 

 

kam_640      Fleet Finch,   TF-KAM

kag_640      Piper Cub,    TF-KAG

jma_640_01      Piper Cub,   TF-JMA

jmf_640      Piper Cub,    TF-JMF

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf